Staðsetning góð ?

"Staðsetn­ing­in er góð, á milli tveggja skóla"  ?   Þetta ferlíki er inn á skólalóð Kópavogsskóla og svo er austurhliðin algjörlega sólarlaus , þar sem að Vetingahúsaskóli MK skyggir á þá hlið.  Svo er gert ráð fyrir bílastæðalausri þjónustu , um 200 fermetrum , en það kemur reyndar ekki fram í þessari frétt.

Best að leyfa nærliggjandi íbúm bæjarins að svara þessu, sem Gísli og Kópavogsbær ákváðu að vaða yfir með skítugum skónum sínum , ojj. 

Augljóst þykir íbúum, sem sendu inn athugasemdir frá upphafi,  að þarna verður allt of þétt byggt (2250% aukning íbúa) , allt of hátt byggt sem mun skerða útsýni og auka við skuggahliðar nærliggjandi íbúa,  og byggingarstíll er ekki í samræmi við nærliggjandi umhverfi.  Þá er umferðaröryggi barna í hættu hvor áttin sem innkeyrslan að bílakjallara snýr , þar sem bílaumferð mun alltaf enda á Digranesvegi, framhjá MK og Kópavogsskóla, þar sem börn eru að ganga í og úr skóla.  Ekki virðist heldur vera fjallað um, eða gerð grein fyrir,  þeirri umferð sem mun stafa af 200fm2 atvinnuhúsnæðinu sem gert er ráð fyrir á jarðhæð.  

Þá verður hljóðmengun sem tengist aukinni bílaumferð meiri og spurning með frárennslislagnir á svæðinu.  Telja íbúar að það megi , á umræddum reit, byggja 40 íbúðir í raðhúsastíl eða hæðir  (500% aukning á íbúðum) eða að bærinn kaupi viðkomandi lóð af verktakanum til þess að geta stækkað skólanna , þar sem að fyrirhuguð stækkun á Hamraborg mun framkalla stækkunarþörf á grunn- og framhaldsskóla.


mbl.is 180 íbúðir á lóð átta húsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhann Már Sigurbjörnsson
Jóhann Már Sigurbjörnsson

Höfundur er Kerfisstjóri, Fv. formaður Samtaka Leigjenda á Íslandi, Sit í trúnaðaráði VR frá árinu 2008.

Tónlistarspilari

Óþekktur höfundur - Réttlæti ekkert ofbeldi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband